Manchester City enskur bikarmeistari Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. maí 2011 00:28 Nordic Photos / Getty Images
Bæði liðin í Manchester geta leyft sér að fagna í dag þar sem að Manchester City varð í dag enskur bikarmeistari. Þetta var fyrsti stóri titill félagsins í 35 ár. Fyrr í dag varð Manchester United enskur meistari eftir 1-1 jafntefli við Blackburn. Það má því búast við því að það verði fagnað í Manchester-borg í kvöld. Stoke var að keppa til úrslita í bikarnum í fyrsta sinn í langri sögu félagsins en þarf að bíða eitthvað enn eftir fyrsta titlinum. Carlos Tevez fyrirliði var í byrjunarliði City í dag en hann hefur verið frá síðustu þrjár vikurnar eftir að hann meiddist á vöðva aftan í læri í leik City gegn Liverpool. Tevez náði þó að jafna sig á meiðslunum í tæka tíð og Roberto Mancini ákvað að veðja á hann með því að setja hann í sóknarlínu City með Mario Balotelli. Tveir leikmenn Stoke, þeir Matthew Ethrington og Robert Huth, voru báðir tæpir fyrir leikinn vegna meiðsla en Tony Pulis, stjóri Stoke, ákvað að setja þá báða í byrjunarliðið. Manchester City var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en náði ekki að skora. Mario Balotelli átti hættulegustu marktilraun City en markvörður Stoke, Thomas Sörensen, varði glæsilega frá honum. Stoke fékk sitt besta færi í síðari hálfleik er Kenwyne Jones var nálægt því að skora en Joe Hart, markvörður City sá við honum. Svo skoraði Toure markið á 74. mínútu. David Silva lagði boltann fyrir Balotelli sem reyndi skot að marki. Boltinn fór af varnarmanni og beint fyrir fætur Toure sem þrumaði knettinum í netið af stuttu færi. Stoke reyndi að jafna metin af fremsta megni en allt kom fyrir ekki. Þetta er mikill sigur fyrir knattspyrnustjórann Roberto Mancini en City tryggði sér á dögunum þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira