Ancelotti: Úrslitin ráðast ekki á liðsskipaninni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. maí 2011 22:45 Nordic Photos / Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, neitar því að hann væri að taka áhættu með því að stilla þeim Fernando Torres og Didier Drogba saman upp í fremstu víglínu í leiknum gegn Manchester United á sunnudaginn. Torres var keyptur til Chelsea í janúar síðastliðnum en sparkspekingum í Englandi finnst að honum hafi gengið illa að spila með Drogba. „Þetta væri ekki áhættusamt - Torres er frábær framherji,“ sagði Ancelotti við enska fjölmiðla í dag. „Ég vil þó segja eitt. Liðsskipanin mun ekki ráða úrslitum í þessum leik.“ „Það sem mestu máli skiptir er hugrekki leikmanna, persónuleiki þeirra og karakter. Og við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því.“ Hann hefur ekki áhyggjur af því að leikmenn fari í fýlu ef þeir fá ekki sæti í byrjunarliðinu. „Ég vil að mínir leikmenn skilji að það skiptir ekki öllu máli að vera í byrjunarliðinu. Það skiptir meira máli að þeir geti haft áhrif, þó svo að þeir spili í aðeins 20 mínútur.“ „Leikmenn sem hafa komið inn á af bekknum geta haft mikið að segja. Við höfum unnið leiki vegna slíkra leikmanna og það var tilfellið í apríl þegar að Drogba kom inn á og vann leiki fyrir okkur.“ „Það þarf meira til en bara ellefu leikmenn til að vinna leiki.“
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira