19. meistaratitillinn á leiðinni á Old Trafford - United vann Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2011 14:15 Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester United á Englandsmeistaratitilinn vísan eftir 2-1 sigur á Chelsea í hálfgerðum úrslitaleik milli tveggja efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í dag. United skoraði strax á fyrstu mínútu leiksins og yfirspilaði Chelsea-menn stóran hluta fyrri hálfleiksins en Chelsea setti smá spennu í leikinn með því að minnka muninn í seinni hálfleik. Manchester United er nú með sex stiga forskot á Chelsea þegar sex stig eru eftir í pottinum en United-menn eiga eftir leiki á móti Blackburn Rovers á útivelli og Blackpool á heimavelli. Það tók Javier Hernandez aðeins 37 sekúndur að koma Manchester United í 1-0 þegar hann slapp í gegn eftir sendingu frá Park Ji-Sung í gegnum sofandi vörn Chelsea. Hernandez var nálægt því að bæta við öðru marki á 11. mínútu og aftur kom sendingin frá Park Ji-Sung en að þessu sinni rétt missti Chicharito af boltan á fjærstönginni. Wayne Rooney lét líka til sína taka á upphafsmínútum, hann átti þrumuskot af 30 metra færi sem Peter Cech varði frá honum á 9. mínútu og á 15. mínútu átti Rooney gott skot rétt framhjá. Chelsea fékk fyrsta alvöru færi sitt á 19. mínútu þegar Florent Malouda skapaði usla á kantinum og Salomon Kalou átti skot sem Edwin van der Sar varði vel. Annað mark United hafði legið í loftinu frá fyrstu mínútu og það var síðan Nemanja Vidic sem kom United í 2-0 á 24. mínútu með skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Ryan Giggs. Edwin van der Sar þurfti að taka á stóra sínum skömmu eftir markið þegar hann varði skalla frá Salomon Kalou af stuttu færi og hollenski markvrðurinn varði síðan fasta aukaspyrnu frá Didier Drogba á 31. mínútu. Carlo Ancelotti gerði tvær breytingar á Chelsea-liðinu í hálfleik og setti svo Fernando Torres inn fyrir Kalou á 61. mínútu. Við það lifnaði aðeins yfir sóknarleik Chelsea. Frank Lampard minnkaði síðan muninn á 68. mínútu þegar hann potaði boltanum inn eftir að Branislav Ivanovic skallaði fyrirgjöf Ramires til hans. Skömmu seinna var Rooney næstum því búinn að svara fyrir United en Alex varði þá skot hans með því að kasta sér fyrir skot Rooney á marklínunni. Manchester United fékk nokkur ágæt færi í skyndisóknum á lokakaflanum en besta færi Chelsea fékk Fernando Torres á 87. mínútu en skot hans úr teignum fór framhjá.
Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira