QPR komið með annan fótinn í ensku úrvalsdeildina Jón Júlíus Karlsson skrifar 25. apríl 2011 15:57 Heiðar Helguson og félagar gerðu jafntefli í dag. Nordic Photos/Getty Images
Heiðar Helguson og félagar hans í QPR eru svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir 1-1 jafntefli við Hull City í dag. Heiðar var í byrjunarliðinu hjá QPR í dag sem komst yfir með marki Wayne Routledge á 9. mínútu en Hull City jafnaði leikinn þegar skammt var eftir. QPR er með 85 stig á toppi ensku B-deildarinnar þegar tveimur leikjum er ólokið. Norwich er í öðru sæti með 80 stig eftir sigur á Derby County í dag. Marlon Jackson kom í veg fyrir að QPR tryggði sér endanlega sæti í ensku úrvalsdeildinni með að skora þrennu í dag. Lokamarkið skoraði hann í lokasókn leiksins og tryggði um leið Norwich sigur í leiknum. Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry City sem tapaði fyrir Middlesbrough á útivelli, 2-1. Hvorki Ívar Ingimarsson né Brynjar Björn Gunnarsson voru í leikmannahópi Reading sem tapaði á heimavelli fyrir Sheffield United, 2-3. Leeds United tapaði dýrmætum stigum í dag er liðið tapaði fyrir Crystal Palace á útivelli. Liðið er í harðri baráttu um að komast í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni en er nú í 9. sæti, þremur stigum frá 6. sæti sem tryggir þátttökurétt í umspilinu. Preston féll niður í ensku C-deildina eftir tap fyrir Cardiff á heimavelli. Jóhannes Kar Guðjónsson og félagar í Huddersfield höfðu betur gegn Dagenham & R'bridge, 2-1, á heimavelli. Jóhannes Karl kom inná sem varamaður þegar 60. mínútur voru liðnar af leiknum. Kári Árnason lék allan leikinn í 1-0 sigri Plymoth gegn MK Dons. Plymoth er í harðri fallbaráttu en Huddersfield á góðan möguleika á að tryggja sig upp um deild.Úrslit dagsins í ensku B-deildinni: Barnsley 2-2 Doncaster R. Bristol C. 2-3 Nottingham F. Burnley 1-1 Portsmouth Crystal Palace 1-0 Leeds U. Leicester C. 4-2 Watford Middlesbrough 2-1 Coventry C. Norwich C. 3-2 Derby County Preston North End 0-1 Cardiff C. Queens Park R. 1-1 Hull C. Reading 2-3 Sheffield U. Scunthorpe U. 1-2 Millwall Swansea C. 4-1 Ipswich T.Staðan í ensku B-deildinni: 1 QPR 85 stig 2 Norwich 80 ... 3 Cardiff 79 4 Swansea 74 5 Reading 73 6 Nott'm Forest 69 ... 7 Millwall 67 8 Burnley 67 9 Leeds 66 10 Hull 64 11 Leicester 63 12 Watford 61 13 Ipswich 59 14 Portsmouth 57 15 Middlesbrough 56 16 Bristol City 54 17 Coventry 53 18 Barnsley 52 19 Derby 49 20 Crystal Palace 47 21 Doncaster 47 ... 22 Sheff Utd 41 23 Scunthorpe 41 24 Preston 39
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira