Wilshere vill vinna meistaratitil og spila á Ólympíuleikunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. apríl 2011 10:15 Jack Wilshere í leik með enska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images
Jack Wilshere segir að það sé draumur sinn að vinna enska meistaratitilinn og fá tækifæri til að spila á Ólympíuleikunum. Síðarnefnda atriðið ætti að vera auðsótt mál, ef félagslið hans mun ekki standa í vegi fyrir því. Bretland verður gestgjafi á Ólympíuleikunum í Lundúnum á næsta ári og því fær núverandi U-21 landslið Englands sjálfkrafa þátttökurétt á mótinu. Jack Wilshere er lykilmaður í því liði en óvíst er hvort að hann fái að spila með landsliðinu í úrslitakeppni EM í Danmörku í sumar. Arsene Wenger, stjóri hans hjá Arsenal, er mótfallinn því. Sjálfur hefur Wilshere marglýst því yfir að hann vilji spila fyrir enska landsliðið, hvar og hvenær sem er. Arsenal gerði um helgina 1-1 jafntefli við Liverpool og tapaði þar með dýrmætum stigum í titilbaráttunni við topplið Manchester United. Wilshere er þó ekki búinn að gefa titilinn upp á bátinn. „Við eigum sex bikarúrslitaleiki eftir,“ sagði Wilshere og vísaði þá til mikilvæga þeirra sex leikja sem liðið á eftir í ensku úrvalsdeildinni í vetur. „Okkur finnst að við eigum enn möguleika. Við höfum algjöra trú á því. Ef ekki við, hver þá? Við vitum að stjórinn hefur enn trú á þessu,“ sagði Wilshere sem var á dögunum valinn besti ungi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. „Kannski hafa einhverjir stuðningsmenn misst trúna en þeir hafa samt verið frábærir og stutt okkur í hverri einustu viku. Við viljum endurgjalda það og erum sannfærðir um að Manchester United eigi eftir að tapa stigum.“ „United á enn eftir að koma á Emirates. Ef við vinnum þá þar fylgja kannski önnur slæm úrslit í kjölfarið.“ Wilshere segist einnig hlakka mikið til Ólympíuleikanna í Lundúnum. „Það væri sannkallaður draumur að fá að taka þátt í Ólympíuleikunum.“
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira