Torres þarf að bæta sig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. apríl 2011 13:00 Fernando Torres í leiknum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hefur enn trú á Fernando Torres en segir að hann þurfi vissulega að bæta sig. Torres hefur enn ekki skorað með Chelsea síðan að hann var keyptur til félagsins fyrir 50 milljónir punda frá Liverpool í lok janúar. Hann var settur á varamannabekk liðsins er Chelsea gerði 1-1 jafntefli við Stoke í gær en spilaði síðasta hálftíma leiksins, án þess að láta mikið af sér kveða. „Það er augljóst að hann þarf að bæta sig,“ sagði Ancelotti í samtali við enska fjölmiðla. „Hann hefur verið hérna í tvo mánuði og það getur vissulega gerst að hann eigi erfitt með að ná góðu sambandi við alla leikmennina inn á vellinum.“ „Stundum kemur hann með mjög góð hlaup fyrir aftan varnarmann andstæðingsins en boltinn kemur ekki á þeim tíma sem hann vill fá hann. Það er eitthvað sem við þurfum að bæta.“ Ancelotti segir þó það algera fásinnu að Didier Drogba sé óánægður með að Torres hafi komið til liðsins og sé tregur til að gefa á hann í leikjum. „Þetta er bara eitthvað sem er rætt á pöbbunum. Leikmenn gefa alltaf boltann ef það er möguleiki til þess. Ég hef rætt við Drogba sem telur að Torres hafi verið fenginn til að styrkja liðið. Hann er því ánægður.“
Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Fleiri fréttir Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Sjá meira