Benitez dreymir um að komast aftur á Anfield Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2011 13:00 Rafael Benitez. Mynd/AFP
Rafael Benitez, fyrrum stjóri Liverpool saknar mikið tímans á Anfield og dreymir um að fá annað tækifæri hjá félaginu. Benitez hætti sem stjóri Liverpool í lok síðasta timabils en hann var þá búinn að vera þar í sex ár. Benitez fór til Inter Milan þar sem hann tók við af Jose Mourinho áður en Rafa var síðan rekinn á miðju tímabili. Benitez hefur síðan verið atvinnulaus síðan í desember. Kenny Dalglish hefur staðið sig frábærlega síðan að hann tók við Liverpool-liðinu af Roy Hodgson í janúar og það bendir allt til þess að Dalglish fái að halda áfram með liðið næstu árin. „Ég er mjög stoltur af því að hafa verið stjóri Liverpool Football Club og ég hefði mikinn áhuga á því að koma þangað aftur í framtíðinni. Það er samt aldrei að vita hvernig þetta þróast því Kenny er að standa sig frábærlega. Hver veit nema að eitthvað breytist," sagði Rafael Benitez við Sky Sports News. „Það væri draumur að rætast ef ég fengi annað tækifæri og ég yrði mjög ánægður að fá að koma til baka. Stuðningsmenn Liverpool vita líka hvaða félög ég færi aldrei til án þess að ég nefni þau á nafn. Ég held hvort sem er að þau myndu aldrei bjóða mér starf," sagði Benitez og á þar væntanlega við Everton og Manchester United.
Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira