Ferguson rýfur þögnina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. mars 2011 09:30 Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur loksins látið hafa eitthvað eftir sér um leikinn gegn Liverpool um helgina. Hvorki Ferguson né leikmenn United fóru í viðtöl við fjölmiðla eftir leikinn. Ferguson var nýlega kærður fyrir ummæli sem hann lét falla eftir leik United gegn Chelsea í síðustu viku og gæti það tengst því að hann hafi sett allt liðið í fjölmiðlabann um helgina. En hann segir nú að frammistaða sinna manna í leiknum gegn Liverpool hafi verið hörmuleg. „Það eru engar afsakanir sem ég hef fyrir þessu tapi,“ sagði Ferguson við enska fjölmiðla. „Þetta voru mér mikil vonbrigði því liðið spilaði ekki af þeirri getu sem til er ætlast og við oftast gerum.“ Arsenal er nú þremur stigum á eftir United en á þar að auki leik til góða. Ferguson segir að hann sé svo sannarlega meðvitaður um það. „Á síðasta tímabili fór Arsenal að gefa eftir í febrúar og mars sem gerði það að verkum að við vorum einir í titilbaráttunni með Chelsea,“ sagði Ferguson. „Ég held að sérfræðingarnir hafi átt von á einhverju svipuðu í ár auk þess sem að City og Tottenham myndu blanda sér meira í baráttuna.“ „En Arsene Wenger og leikmenn hans hafa gert lítið úr þeim spádómum og eru nú í góðri stöðu í öðru sæti deildarinnar. Okkur stafar helst hætta af Arsenal og þetta minnir á þegar við börðumst um titlana af mikilli hörku fyrir nokkrum árum.“
Mest lesið Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Sport Fleiri fréttir Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Sjá meira