Stoke í undanúrslit eftir sigur gegn West Ham Jón Júlíus Karlsson skrifar 13. mars 2011 15:55 Frédéric Piquionne skorar mark sitt í dag. Nordic Photos/Getty Images
Stoke er komið í undanúrslit ensku bikarkeppninnar eftir 2-1 sigur á West Ham í bráðfjörugum leik. Stoke er þar með komið undanúrslit ásamt Manchester United og Bolton en seinna í dag kemur í ljós hvort það verður Man. City eða Reading sem kemst í undanúrslit. Leikurinn var ekki nema tveggja mínútna gamall þegar Stoke voru búnir að fá tvö mjög góð færi. Matthew Etherington skallaði boltann í hendurnar á Robert Green úr sannkölluðu dauðafæri og hefði átt að koma heimamönnum yfir. Stoke náði hins vegar forystunni á 12. mínútu og var Þjóðverjinn Robert Huth þar að verki. Rory Delap átti langt innkast inn í teig þar sem Huth kom askvaðandi og skallaði boltann örugglega í netið framhjá Green í marki West Ham. Sannkallað "Stoke-mark". West Ham jafnaði leikinn á 30. mínútu með umdeildu marki frá Frédéric Piquionne sem virtist leggja boltann fyrir sig með hendinni áður en hann vippaði boltanum yfir Thomas Sørensen í marki Stoke og ýtti boltanum svo yfir marklínuna með brjóstkassanum. Piquionne meiddist er hann skoraði markið og varð að fara af velli. Seinni hálfleikurinn byrjaði með miklum látum því Stoke fékk afar ódýra vítaspyrnu eftir aðeins 15 sekúndna leik. Etherington féll þá við í teignum eftir viðskipti við Scott Parker. Mike Jones dæmdi vítaspyrnu sem verður að segjast að var afar strangur dómur. Etherington fór sjálfur á punktinn en Green varði vítaspyrnuna frábærlega. Danny Higginbotham kom Stoke aftur yfir á 62. mínútu leiksins með marki úr aukaspyrnu sem fór í gegnum varnarvegg West Ham og Green réð ekki við í markinu. Klaufalegur varnarleikur hjá West Ham. Victor Obinna var ekki langt frá því að jafna leikinn skömmu síðar en Sörensen varði frábærlega í marki Stoke. Matthew Upson átti skalla í slánna á 86. mínútu eftir hornspyrnu og Carlton Cole átti gott skot sem Sörensen varði undir lok leiksins. Þetta er í fjórða sinn sem Stoke kemst í undanúrslit í sögu félagsins.Stoke – West Ham 2-1 1-0 Robert Huth (12.) 1-1 Frédéric Piquionne (30.) 2-1 Danny Higginbotham (62.)
Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Íslenski boltinn Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira