Arsenal vann en Cesc Fabregas og Theo Walcott meiddust Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2011 21:51 Sebastien Squillaci tryggði Arsenal þrjú stig í kvöld. Mynd/AP
Arsenal vann 1-0 sigur á Stoke á Emirates-leikvanginum í kvöld í leik liðanna í ensku úrvalsddildinni en með þessum sigri minnkaði Arsenal forskot Manchester United á toppnum í aðeins eitt stig. United á þó leik inni á Arsenal. Franski miðvörðurinn Sebastien Squillaci hefur mátt þola harða gagnrýni frá stuðningsmönnum Arsenal á tímabilinu en hann var hetja liðsins í kvöld og skoraði sigurmarkið í þessum mikilvæga sigri. Eina mark leiksins kom eftir aðeins tæpar átta mínútur þegar Squillaci skoraði með skalla úr markteig eftir sendingu frá Nicklas Bendtner og hornspyrnu frá Jack Wilshere. Arsenal varð hinsvegar fyrir áfalli þegar Cesc Fabregas varð að fara meiddur af velli eftir aðeins 14 mínútna leik. Andrei Arshavin kom inn á fyrir hann en Arsenal-menn virtust stuðast nokkuð við meiðsli fyrirliðans því þeir náðu sér aldrei almennilega á strik eftir það. Það er ekki ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en það leit þó út fyrir að Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hafi ekki viljað taka neina áhættu og tók hann því Fabregas strax útaf. Það léttist ekki brúnin á Frakkanum þegar Theo Walcott meiddist líka í seinni hálfleiknum. Stoke tapaði þarna sínum fjórða útileik í röð og hefur jafnframt aðeins náð að vinna einn af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni.
Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Handbolti Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð Handbolti „Núna er allt betra“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Sjá meira
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti