Birmingham deildabikarmeistari eftir ótrúleg varnarmistök Arsenal Jón Júlíus Karlsson skrifar 27. febrúar 2011 18:02 Nikola Zigic og Obafemi Martins fagna sigurmarkinu í dag. Mynd/Nordic Photos/Getty
Birmingham er deildabikarmeistari eftir að hafa lagt Arsenal af velli, 2-1, í stórkemmtilegum leik. Obafemi Martins skoraði sigurmarkið á 90. mínútu eftir ótrúleg varnarmistök Arsenal. Arsenal slapp með skrekkinn strax á annarri mínútu þegar Lee Bowyer slapp í gegnum vörnina en var felldur af Wojciech Szczesny. Bowyer var ranglega dæmdur rangstæður en Birmingham hefði átt að fá vítaspyrnu og Szczesny hefði líklega fengið rauða spjaldið. Birmingham náði verðskuldað forystunni í leiknum á 28. mínútu þegar Nikola Zigic skoraði með skalla en vörn Arsenal var úti á þekju. Robin van Persie jafnaði leikinn á 39. mínútu með frábæru marki eftir sendingu frá Andrej Arsjavin. Ben Foster hélt Birmingham á floti í leiknum og varði hvað eftir annað frá sóknarmönnum Arsenal. Markvörðurinn Szczesny mun líklega ekki sofa mikið í nótt því hann gerði sig sekan um hrikaleg mistök á 90. mínútu leiksins þegar hann missti frá sér boltann og Obafemi Martins þurfti ekki annað en að pota boltanum í netið. Martins tryggði Birmingham þar með titilinn og er þetta fyrsti titill liðsins í 48 ár. Leikurinn var stórskemmtilegur og var sóknarleikurinn í forgrunni. Arsenal-menn áttu erfitt með sig eftir leikinn enda hefur liðið ekki unnið titil í sex ár og þurfa að bíða lengur.Arsenal 1-2 Birmingham 1-0 Nikola Zigic ('28) 1-1 Robin van Persie ('39) 1-2 Obafemi Martins ('90)
Mest lesið Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Sport Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Enski boltinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Formúla 1 Elliði Snær markahæstur í mikilvægum sigri Handbolti „Má ekkert segja um þessa dómara en þetta var hræðilegt“ Sport Mikilvægur sigur Tindastóls sem fær heimavallarrétt í Evrópu Körfubolti Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Uppgjörið: Stjarnan 71-74 Haukar | Íslandsmeistararnir tylla sér á toppinn Körfubolti Fleiri fréttir Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Sjá meira