Fallinn einræðisherra til í viðræður um myndun bráðabirgðarstjórnar 28. ágúst 2011 14:00 Það er ljóst hvað landsmönnum finnst um Gaddafi.
Muhammed Gaddafi segist reiðubúinn að ganga til viðræðna við uppreisnarmenn um myndun bráðabyrgðarstjórnar í Líbíu. Um 2,9 milljarða dollara vantar í opinberan fjárfestingarsjóð líbíska ríkisins. Grunur leikur á a fjárfestingarsjóðurinn hafi verið misnotaður. Litlar líkur eru taldar á að uppreisnarmenn þiggi boð Gaddafis um viðræður en fé hefur verið heitið til höfuðs Gaddafi, sem hefur farið huldu höfði, eftir að uppreisnarmenn náðu Trípóli, höfuðborg Líbíu á sitt vald. Afleiðingar átakanna koma nú sífellt betur í ljós. Á föstudaginn uppgötvuðust hundrað lík á sjúkrahúsi í Líbíu. Hinir látnu höfðu verið myrtir af sveitum Gaddafis síðustu dagana áður en borgin féll. Enn er barist á götum og er mannfall af völdum leyniskyttna mikið. Þá hefur Græna torgið í Trípólí fengið nýtt nafn og er nú kallað Píslarvættistorgið - til að heiðra minningu þeirra uppreisnarmanna sem létu lífið í bardögunum gegn hersveitum Gaddafis. Flestir telja að Gaddafi sé flúinn frá Líbíu. Hann fari nú huldu höfði. Líklega væsir þó ekki um Gaddafi í útlegðinni. Nú hefur komið í ljós að um 2,9 milljarða dollara vantar í opinberan fjárfestingarsjóð líbíska ríkisins, eða jafnvirði um 330 milljarða króna. Mahmoud Badi, sem sér um að yfirfara erlendar fjárfestingar sjóðsins, segir að svo virðist sem fjárfestingarsjóðurinn hafi verið misnotaður. Sjóðurinn á um sjötíu milljarða dollara í eignum, en hann var settur á laggirnar árið 2006 af Saif al-Islam, einum af sonum Gaddafís. Sjóðurinn á hluti í ítalska bankanum UniCredit, ítalska knattspyrnuliðinu Juventus og Pearson, útgáfufélagi Financial Times, svo fátt eitt sé nefnt. Badi var settur í embættið af umbreytingarstjórninni í Líbíu og BBC hefur eftir honum að öllum meðulum verði beitt til að endurheimta peningana. Því hefur verið haldið fram að tíu ár muni taka að byggja upp innviði Líbíu eftir átökin í aðdraganda þess að Gaddafí hrökklaðist frá völdum.
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fleiri fréttir Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Sjá meira