Enski boltinn

Nasri var í viðræðum við Paris Saint-Germain

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nasri eftir leikinn gegn Tottenham
Nasri eftir leikinn gegn Tottenham Mynd. Getty Images
Samir Nasri, leikmaður Manchester City, hefur viðurkennt það að hann hafi einnig verið í viðræðum við franska stórveldið Paris Saint-Germain.

Nasri mun hafa verið í samskiptum við Leonardo, yfirmann íþróttamála, hjá Paris Saint-Germain í sumar og litlu hafi munað að miðjumaðurinn hafi gegnið til liðs við félagið.

Samir Nasri gekk  til liðs við Man. City í síðustu viku frá Arsenal og sló í gegn með liðinu í sínum fyrsta leik þar sem hann lagði upp þrjú mörk fyrir Man. City í sigri gegn Tottenham.

„Ég talaði við Leonardo í sumar, en hann hafði alltaf  mikinn áhuga á mér þegar hann var knattspyrnustjóri hjá Inter, en það gekk ekki upp“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×