Redknapp: Modric vildi ekki spila Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. ágúst 2011 18:07 Harry Redknapp, stjóri Tottenham. Nordic Photos / Getty Images
Luka Modric vildi ekki spila með Tottenham gegn Manchester City í dag, að sögn Harry Redknapp, stjóra Tottenham. Modric hefur verið orðaður við Chelsea í allt sumar. Tottenham hefur hafnað tveimur tilboðum í Modric nú þegar en Chelsea keypti á dögunum Juan Mata til liðsins. Var þá talið að áhugi liðsins á Modric hafi minnkað. Forráðamenn Tottenham hafa margítrekað að Modric fari ekki frá félaginu og var hann settur í byrjunarliðið gegn City í dag. City vann, 5-1, og Modric átti ekkert sérstakan dag eins og svo margir í liði Tottenham. „Luka kom til mín klukkan hálf tólf í morgun og sagði að hann væri ekki í neinu ástandi til að spila leikinn - hann væri með hugann við annað,“ sagði Redknapp eftir leikinn. „Ég sagði einfaldlega að ég þyrfti á honum að halda og hann yrði einfaldlega að spila. Ég sagði honum að það væru meiðsli í okkar leikmannahópi og að hann væri okkar aðalmaður.“ Redknapp grunar að Modric hafi verið ráðlagt af utanaðkomandi aðilum að spila ekki í dag. „Hann var í góðu lagi í gær þannig að það gerðist augljóslega eitthvað í millitíðinni. Hver veit hvað átti sér stað.“ Enskir fjölmiðlar fullyrða að Chelsea sé reiðubúið að leggja fram tilboð upp á 40 milljónir punda í Modric.
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ísland - Tyrkland | Svara strákarnir fyrir Serbatapið? Körfubolti Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Breiðablik - Stjarnan | Grannaslagur í Kópavogi Íslenski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Fleiri fréttir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal | Meistararnir í Birmingham „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Sjá meira