Enski boltinn

Pereira á leið til Chelsea

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pereira í leik með úrúgvæska landsliðinu.
Pereira í leik með úrúgvæska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images
Portúgalskir fjölmiðlar fullyrða í kvöld að bakvörðurinn Alvaro Pereira hjá Porto sé við það að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea.

Chelsea mun hafa lagt fram tilboð í Pereira fyrr í vikunni en því var umsvifalaust hafnað af forráðamönnum Porto.

Andre Villas-Boas er stjóri Chelsea en hann stýrði liði Porto á síðustu leiktíð. Pereira getur einnig leikið á vinstri kantinum og er sagður metinn á um 30 milljónir evra af forráðamönnum Porto.

Ólíklegt er að Chelsea vilji greiða svo mikið en samkvæmt portúgalska dagblaðinu O Jogo er engu að síður talið að gengið verði frá sölunni á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×