Erlent

Yfir 200 látnir í jarðskjálftunum í Tyrklandi

Tala látinna í jarðskjálftunum í Tyrklandi í gærdag er komin yfir 200 og um 1.100 manns hafa slasast. Björgunarsveitir og almennir borgarar í borgunum Ercis og Van hafa unnið hörðum höndum í alla nótt við að bjarga fólki úr húsarústum í borginni en yfir 1.000 byggingar í henni hrundu til grunna.

Öflugur jarðskjálfti upp á 7,2 á Richter reið yfir austurhluta Tyrklands um hádegisbilið í gærdag. Honum fylgdu síðan eftirskjálftar upp á 5 og 6 stig á Richer, sá síðari í gærkvöldi. Borgin Ercis varð verst úti. Ekkert rafmagn er í borginni og nota björgunarmenn bílljós og vasaljós við leit sína. Þá hefst fólk við í tjöldum í borginni þrátt fyrir mikinn kulda af ótta við frekari eftirskjálfta.

Forsætisráðherra Tyrklands hefur afþakkað alþjóðlega aðstoð og segir að tyrkneskar björgunarsveitir ráði við vandann. Hann þakkaði þó erlendum ríkjum fyrir að hafa boðið fram aðstoð sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×