Rick Perry gæti skákað Romney 13. ágúst 2011 06:00 Rick Perry
Rick Perry fylkisstjóri í Texas er talinn líklegur til að gefa loks kost á sér í forvali repúblikana fyrir forsetakosningarnar á næsta ári eftir mánaða vangaveltur. Verði af því, þykir stjórnmálaskýrendum líklegt að hann komist strax í hóp þeirra sigurstranglegustu. Sem stendur hefur Mitt Romney forystu í flestum viðhorfskönnunum og þar á eftir eru Michele Bachmann og Tim Pawlenty. Hópurinn að þessu sinni þykir ansi þunnskipaður og ólíklegt að nokkur þar muni geta velt Barack Obama úr forsetastólnum. Romney hefur ekki enn náð að sannfæra repúblikana um ágæti sitt þar sem hann, í tíð sinni sem fylkisstjóri Massachusets, stóð meðal annars fyrir umbótum í heilbrigðismálum, sem þykja full líkar þeim sem demókratar komu í gegnum þingið í fyrra, íhaldsmönnum til lítillar gleði. Perry gæti hins vegar komið sterkur inn, en margt getur gerst á þeim fimm mánuðum sem eru í fyrstu forkosningarnar. Athyglisvert verður þó að fylgjast með tilraunakosningu sem fer fram í Iowafylki í dag. Þó að hún hafi ekkert að segja opinberlega, gæti verið að einhverjir myndu heltast úr lestinni í ljósi slæmrar útkomu þar. - þj
Mest lesið Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Innlent Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Innlent Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Innlent Orðin hæsta kirkja í heimi Erlent Langt í frá að málinu sé lokið Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Íhugar ekki stöðu sína Innlent Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Innlent Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Erlent Fleiri fréttir Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Vill hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju Fleiri handteknir vegna ránsins í Louvre „Samþykki“ tekið upp í frönskum lögum í kjölfar Pelicot málsins Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Fjórir látnir á Jamaíku og tuttugu í Haítí Hafa játað aðild að ráninu í Louvre Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Bandidos-bifhjólagengið bannað í Danmörku Prófuðu annað kjarnorkuknúið vopn Ákærðir fyrir hryðjuverk gegn ísraelska sendiráðinu í Kaupmannahöfn Segja vopnahléið aftur í gildi eftir miklar árásir Sjá meira