Bandarísk ofurlögga ráðleggur Bretum 13. ágúst 2011 11:00 Frá óeirðunum í miðborg Lundúna Mynd/AFP
Bresk yfirvöld hafa ráðið bandaríska ofurlöggu til að ráðleggja þeim í baráttunni við glæpagengi. Dómstólar hafa vart undan að afgreiða mál óeirðaseggja í landinu. Bandaríski götuglæpasérfræðingurinn William Bratton er nú kominn í þjónustu breska ríkisins, en hann kemur til með að ráðleggja breskum yfirvöldum í baráttunni við glæpagengi eftir óeirðirnar í landinu síðustu daga. Bratton er kallaður ofurlögga í breskum miðlum. Hann var áður lögreglustjóri í Los Angeles og tókst að draga þar verulega úr glæpum áður en hann tók við sem formaður rannsóknarfyrirtækisins Kroll, sem meðal annars hefur komið að rannsókn íslenska bankahrunsins. Um sextán þúsund lögreglumenn eru nú á götum Lundúna, en það er margfalt lögreglulið á við það sem vanalega er. Stjórnvöldum var enda umhugað um að helgardrykkja breskra ungmenna myndi ekki kveikja aftur í púðurtunnu óeirðanna. Hátt í tvöþúsund manns hafa verið handteknir í óeirðunum að því er erlendir fjölmiðlar greina frá, en dómstólar sátu að störfum í alla nótt til að fara með mál þess gífurlega fjölda sem braut af sér á meðan þeim stóð. Afbrotin eru af ýmsum toga, allt frá árásum til stuldar á vatnsflösku. Meðal óeirðaseggjanna eru dóttir milljónamærings, hjálparstarfsmaður og háskólanemar, en flestir þeirra eru hins vegar atvinnulausir ungir menn. Stjórnmálastéttin á undir högg að sækja í landinu eftir að óeirðirnar brutust út, en kannanir breskra dagblaða benda til þess að almenningur sé óánægður með viðbrögð forsætisráðherrans Davids Cameron, og þyki hann hafa stigið of seint fram. Bresk stjórnvöld ætla að bregðast harkalega við óeirðunum. Meðal annarra umdeildra aðgerða er að bera óeirðaseggi sem búa í félagsíbúðum út, en fregnir hafa þegar borist af því að móðir átján ára óeirðaseggs verði borin út af heimili sínu vegna framferðis sonarins.
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fannst heill á húfi Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira