Enski boltinn

Carew gæti spilað um helgina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Talið er líklegt að Norðmaðurinn John Carew geti spilað með Aston Villa gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Carew hefur verið frá vegna meiðsla og hefur misst af síðustu fjórum leikjum Villa. Hann spilaði þó með varaliðinu í vikunni.

„Hann var pínu stífur og aumur eftir þann leik en hann ætti að vera orðinn góður fyrir helgina," sagði Gerard Houllier, stjóri Villa.

Frægt er þegar að Carew og Houllier skiptust á föstum skotum í fjölmiðlum fyrir stuttu síðan vegna ósættis um samningamál þess fyrrnefnda. Þeir hafa þó náð sáttum á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×