Erlent

Starfsmaður á leikskóla gerði grín að grátandi nema á Facebook

Louise og Faye McDonnel.
Louise og Faye McDonnel.

Hin tuttugu ára gamla Yasmine Judge hefur verið vikið tímabundið úr starfi sínu á leikskóla í Huddersfield í West Yorkshire, Bretlandi, fyrir að gera stólpagrín að grátandi nemanda sínum á Facebook.

Neminn heitir Faye McDonnel og er fjögurra á gömul stúlka. Að auki er hún með barkakýlisbólgu sem gerir það að verkum að hún verður rauð og bólgnar út þegar hún verður mjög æst.

Út á það gekk grín starfsmannsins.

Yasmine skrifaði á Facebook-síðuna sína: „Hversu fyndið var það þegar Faye grét undir íhugunartrénu, það var alltof fyndið lol lol lol."

Íhugunartréð er uppeldistækni sem er notuð á leikskólanum. Það er pappírstré sem er á einum veggnum. Börnin setjast við vegginn og velta því fyrir sér hvað þau gerðu rangt.

Móðir Faye, Louise, er æf vegna leikskólastarfsmannsins og hefur þegar safnað 60 undirskriftum til þess að fá hana rekna úr skólanum.

Skólaráðið vildi ekki tjá sig efnislega um málið við The Daily mail en gáfu þó upp að stjórn skólans ynni að því að leysa deiluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×