Innlent

Mun ekki hygla höfuðborgarsvæðinu

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, tók sæti í ríkisstjórn á nýjan leik í dag.
Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, tók sæti í ríkisstjórn á nýjan leik í dag. Mynd/Stefán Karlsson
Ögmundur Jónasson segir að það skipti ekki máli að ráðherra samgöngumála komi nú fyrsta sinn í áratugi frá höfuðborgarsvæðinu því hann beri ekki síður hag landsbyggðarinnar fyrir brjósti.

Ögmundur tók í dag við sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra. Aldrei áður hefur samgönguráðherra komið frá höfuðborgarsvæðinu ef frá er talið þegar Magnús Torfi Ólafsson gegndi embætti samgönguráðherra sumarið 1974, líkt og borgarfulltrúinn Gísli Marteinn Baldursson rifjar upp á heimasíðu sinni.

Spurður hvort það komi til með að hafa breytingar í för meðs sér fyrir íbúa höfuðborgarsvæðsins að samgönguráðherra komi nú frá sama svæði segir Ögmundur: „Ég fullyrði að það skiptir engu máli. Ég ber ekkert síður hag landsbyggðarinnar fyrir brjósti en þéttbýlisbúa hér á Suðvesturhorninu eiginlega nema síður sé. Að mörgu leyti er dreifbýlið háðara samgöngum og á erfiðara uppdráttar ef að samgöngur eru í lamasessi. Við hér erum þó komin með alltraust og öflugt kerfi."

Ögmundur vill ekki segja til um það hvort afstaða forvera hans hafi verið sú sama.



Óeðlilegur samanburður


Á heimasíðu sinni bendir Gísli Marteinn á að á höfuðborgarsvæðinu búi 70% landsmanna en samkvæmt samgönguáætlun til ársins 2012 fari einungis 15% fjármagsins til framkvæmda á umræddu svæði.

Spurður hvort það sé eðlileg skipting segir Ögmundur: „Ég veit ekki hvort það er eðlilegt að tengja þetta hlutfallslega við íbúðafjölda. Það eru margar breytur sem koma til sögunar sem gera slíkan samanburð vafasaman svona við fyrstu sýn."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×