Lennon skoraði sigurmarkið gegn Liverpool í uppbótartíma Elvar Geir Magnússon skrifar 28. nóvember 2010 18:20
Martin Skrtel skoraði fyrir bæði lið þegar Tottenham vann 2-1 sigur á Liverpool í lokaleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Skemmtanagildi leiksins var feykilega hátt en Aaron Lennon skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma. Rafael van der Vaart var í byrjunarliði Tottenham en hann gekk greinilega ekki heill til skógar og þurfti að fá skiptingu eftir tíu mínútur. Liverpool var betra liðið í fyrri hálfleik og komst verðskuldað yfir á 42. mínútu þegar Skrtel náði að skora sitt annað mark í ensku úrvalsdeildinni. Maxi Rodriguez og Fernando Torres misnotuðu báðir dauðafæri fyrir hálfleik en gestirnir hefðu vel getað verið þremur mörkum yfir þegar gengið var til búningsherbergja. Snemma í seinni hálfleik fékk Torres annað dauðafæri til að skora fyrir Liverpool en var of lengi að athafna sig, Sebastien Bassong hljóp hann uppi í annað sinn í leiknum og bjargaði með frábærum varnarleik. Tottenham var svo nálægt því að jafna skömmu síðar en bjargað var á marklínu. Dómarinn Martin Atkinson dæmdi svo hendi á David Ngog eftir aukaspyrnu. Hann var rétt fyrir innan teiginn og því vítaspyrna staðreynd. Varamaðurinn Jermain Defoe fór á punktinn en spyrna hans var hörmuleg og hann skaut framhjá. Á 66. mínútu kom jöfnunarmarkið 1-1. Þá hljóp Luka Modric framhjá þremur varnarmönnum og renndi knettinum fyrir en Skrtel renndi sér í boltann og skoraði í eigið mark. Bæði lið freistuðu þess að ná fram sigurmarki og Tottenham tókst að ná því í uppbótartíma leiksins. Paul Konchesky gerði sig sekan um slæm mistök, fór út úr stöðu og Aaron Lennon náði að skora með glæsilegri afgreiðslu. Hann hefði svo getað bætt við öðru marki í blálokin en úrslitin 2-1 fyrir Tottenham sem er í fimmta sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Manchester United. Liverpool situr í tíunda sætinu.
Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira