Erlent

Barn stjórnaði flugumferð á JFK flugvellinum

Eins og sést á myndinni þá er ekkert grín að leiðbeina öllum þessum flugvélum upp í háaloftin án þess að eitthvað fari úrskeiðis.
Eins og sést á myndinni þá er ekkert grín að leiðbeina öllum þessum flugvélum upp í háaloftin án þess að eitthvað fari úrskeiðis.

Sérkennilegt mál er til rannsóknar hjá flugmálayfirvöldum í Bandaríkjunum en á dögunum kom í ljós að barn stjórnaði flugumferð á JFK flugvellinum í New York en völlurinn er einhver fjölfarnasti flugvöllur veraldar.

Þar taka flugvélar næstum linnulaust á loft og lenda á sama tíma því verða flugumferðarstjórar að hafa einbeitninguna í lagi.

Því var flugmálayfirvöldum verulega brugðið þegar upp komst að ungur drengur virtist hafa gefið flugmönnum í aðflugi og við brottför leiðbeiningar í gegnum flugstjórnarturninn. Samkvæmt fréttavef BBC þá hrósaði einn flugmaðurinn drengnum fyrir góð störf eftir að hann hafði leiðbeint honum út á rétta flugbraut.

Á upptökunni heyrist greinilega að fullorðinn einstaklingur er með barninu og gefur því leiðbeiningar. Atvikið átti sér stað í sömu viku og margir skóla í Bandaríkjunum voru í vetrafríi. Því þykir ekki ólíklegt að flugumferðarstjóri hafi tekið drenginn með sér í vinnuna.

Drengurinn virtist finna sig vel í starfinu því í einum samskiptunum við flugmann kvaddi hann að mexíkóskum sið: „Adios, amigo."

Og flugmaðurinn svaraði: „Adios, amigo."

Flugmálayfirvöld hafa ekki vilja gefa upp hversu gamall drengurinn var. Þeir segja atvikið ekki endurspegla fagmannleg vinnubrögð flugumferðarstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×