Erlent

Merkel ánægð með samstarf evruríkjanna

Mynd/AP
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ber lof á samstarf evruríkjanna 16 sem komu sér saman í gær að veita Grikklandi fjárhagsaðstoð. Grísk stjórnvöl glíma við gífurlegan skuldavanda og kynntu í febrúar umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir sem var mótmælt á götum úti. Samkomulagið felur í sér að Grikkjum verði veitt rúmlega 20 milljarða evra lán, en aðeins ef aðrir lánamöguleikar á frjálsum markaði lokist alveg.

Merkel segir að samkomulagið sýni vel hæfni Evrópuríkja til að takast sameiginlega á við vandamál. Brýnt hafi verið að tryggja stöðugleika á evrusvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×