Erlent

Hálshjuggu sex lögreglumenn

Óli Tynes skrifar
Stríðsmenn talibana.
Stríðsmenn talibana.

Talibanar réðust í gær á eftirlitsstöð og svæðisskrifstofu í norðurhluta Afganistans. Þar myrtu þeir sex lögregluþjóna með því að höggva af þeim höfuðin.

Talibanar eru gjarnir á að myrða andstæðinga sína á hrottalegan hátt. Þeir nota jafnvel tækifærið til að vígja unglinga í sínar raðir með því að láta þá hálshöggva eða aflima fólk.

Búist var við hrottalegum árásum í gær en þá var alþjóðleg ráðstefna í Kabúl þar sem rætt var um framtíð Afganistans.

Ahmid Kaarzai forseti sagði þar að Afganar vildu vera búnir að taka við stjórn allra sinna mála árið 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×