Erlent

Hart sótt að forsætisráðherra Ástralíu

Julia Gillard og Kevin Rudd. Sigri Gillard verður hún fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra landsins. Mynd/AP
Julia Gillard og Kevin Rudd. Sigri Gillard verður hún fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra landsins. Mynd/AP
Í fyrramálið fer fram leiðtogakjör í ástralska Verkamannaflokknum eftir að Julia Gillard, lýsti yfir mótframboði gegn, forsætisráðherranum Kevin Rudd sem er núverandi formaður flokksins. Talið er að Gillard muni bera sigur úr býtum en dregið hefur mjög úr vinsældum Rudd að undanförnu meðal almennings og innan Verkamannaflokksins. Sigri Gillard verður hún fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Ástralíu.

Verkmannaflokkurinn sigraði í þingkosningunum fyrir þremur árum þegar ríkisstjórn íhaldsmannsins Johns Howards féll. Næstu kosningar fara fram í síðasta lagi í apríl á næsta ári.

Rudd segir að ákveðnar valdaklíkur standi á bak við mótframboðið. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að meirihluti þingmanna flokksins styður ekki lengur formanninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×