Talið að versti pabbi í heimi eigi 15 börn með 14 konum Valur Grettisson skrifar 29. september 2010 21:59 Keith Mcdonald er einstaklega frjósamur sjarmör sem ætlar þó að verða frekar þungur baggi fyrir breska skattgreiðendur.
Talið er að hinn atvinnulausi Keith Macdonald eigi allt að fimmtán börn út um allar trissur í Bretlandi. Það var Daily mail sem upprunalega sagði frá málinu og Vísir greindi frá fyrr í mánuðinum, en Keith hefur hlotið hið vafasama viðurnefni „versti pabbi í heimi" í breskum fjölmiðlum. Þá var sagt frá því að hann hefði eignast átta börn með átta konum á átta árum. Tvö börn til viðbótar voru þá á leiðinni en þau á hann með sitthvorri móðirinni. Nýjustu upplýsingar af Keith eru hinsvegar þær að hann gæti átt allt að fimmtán börn með fjórtán konum. Keith er 25 ára gamall og varð fyrst pabbi þegar hann var fimmtán ára gamall. Hann hefur verið iðinn við kolann síðan þá en hans helstu veiðilendur, ef svo má að orði komast, eru á strætó-stoppstöðvum. Nú hefur einnig komið í ljós að þessi mikli sjarmör, sem Daily Mail reiknast til að kosti skattgreiðendur eina og hálfa milljón punda í uppihald á börnunum hans fram að lögaldri, hefur verið dæmdur fyrir að ganga í skrokk á einni barnsmóður sinni. Hún fæddi barnið hans sama ár og hann réðst á hana. Þá réðst hann á móður hennar að auki. Keith var þá dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og þurfti að auki að sitja sérstakt námskeið til þess að læra að takast á við reiðina sína. Þá hefur hann þurft að sitja inni eftir að hann rauf nálgunarbann gagnvart einni barnsmóður sinni, en tvær barnsmæður hans hafa fengið nálgunarbann á þennan unga frjósama mann. Sjálfur segir Keith að hann hafi fyrst sofið hjá þegar hann var tíu ára gamall. Hann neitar ávallt að nota smokk við samfarir og hefur grobbað sig af því í viðtölum að hann hafi sofið hjá meira en 40 konum.
Tengdar fréttir Versti pabbi í heimi: Tíu börn með tíu konum á tíu árum Keith Mcdonald hefur fengið hið vafasama viðurnefni „versti pabbi í heimi“ í breskum fjölmiðlum en hann hefur eignast átta börn með átta konum. Tvö börn til viðbótar eru á leiðinni en þau á hann með sitthvorri móðirinni. 19. september 2010 22:30 Mest lesið Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Geimfari Apollo 13 látinn Erlent Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Innlent Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Erlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Sjá meira
Versti pabbi í heimi: Tíu börn með tíu konum á tíu árum Keith Mcdonald hefur fengið hið vafasama viðurnefni „versti pabbi í heimi“ í breskum fjölmiðlum en hann hefur eignast átta börn með átta konum. Tvö börn til viðbótar eru á leiðinni en þau á hann með sitthvorri móðirinni. 19. september 2010 22:30