Írar senda skip til Gasa 2. júní 2010 03:30 Tveir rétttrúaðir gyðingar horfa á tyrkneska skipið Mavi Marmara, sem Ísraelar réðust á á mánudag. Nordicphotos/AFP
Stuðningsfólk Palestínumanna hefur sent írska skipið Rachel Corrie af stað með hjálpar-gögn og fólk til Gasasvæðisins, daginn eftir að ísraelski herinn réðist á skipalest til að stöðva för hennar þangað. Þá sögðust Egyptar ætla að opna um stundarsakir landamærahlið yfir á Gasasvæðið, sem Ísraelar hafa haldið í nánast algerri einangrun árum saman. Árásin á skipalestina kostaði að minnsta kosti tíu manns lífið og vakti hörð viðbrögð stjórnvalda víða um heim. Vaxandi þrýstingur hefur verið á Ísrael að aflétta einangrun Gasasvæðisins, þar sem hálf önnur milljón Palestínumanna býr við mikla fátækt. Michael Martin, utanríkisráðherra Írlands, krefst þess að Ísraelar leyfi írska skipinu að sigla óhindrað til Gasasvæðis. Hann krefst þess einnig að Ísraelar láti lausa alla írska ríkisborgara sem handteknir voru á mánudag. Eftir að hafa stöðvað ferðir skipalestarinnar á mánudag handtóku Ísraelar 679 manns og færðu til lands. Einungis fimmtíu þeirra hafa þegar þegið boð Ísraela um að yfirgefa landið, en hundruð þeirra hafa neitað að sýna Ísraelum samvinnu og eru enn í fangelsi. Þrjátíu eru sagðir vera á sjúkrahúsi í Ísrael. Ísraelar halda því fram að herinn hafi ekki gripið til vopna gegn skipverjum fyrr en þeir urðu fyrir harðvítugum árásum, þar sem beitt var bareflum, hnífum og jafnvel skotvopnum. Þessu er mótmælt af fólki, sem var um borð og segir Ísraela jafnvel hafa skotið á sofandi fólk og haldið áfram að skjóta eftir að hvítum friðarfánum var veifað. Ísraelar segjast hafa unnið hörðum höndum að því að skoða farm skipaflotans. Mest hafi þar farið fyrir tækjabúnaði sem nóg er til af á Gasasvæðinu fyrir. Megnið af farminum hafi engu að síður verið sett í flutningabíla áleiðis til Gasasvæðisins. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman á neyðarfundi á mánudag vegna atburðanna og sendi frá sér ályktun þar sem árásin er fordæmd og þess krafist að óhlutdræg rannsókn verði gerð hið fyrsta. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Fleiri fréttir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Sjá meira