Man. Utd lagði Arsenal og er komið á toppinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 13. desember 2010 21:53 Park fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Nordic Photos/AFP
Man. Utd er komið aftur á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir sanngjarnan 1-0 sigur á Arsenal á Old Trafford. Það var Kóreubúinn Ji-Sung Park sem skoraði eina mark leiksins. Fyrri hálfleikur var frekar tilþrifalítill. Man. Utd réð ferðinni á meðan Arsenal lá frekar aftarlega. Þeir voru þó fastir fyrir og brutu ítrekað á leikmönnum United. United fékk þau fáu færi sem komu í hálfleiknum. United vildi reyndar fá víti eftir um hálftímaleik er boltinn fór í hönd Chamakh en Howard Webb dómari dæmdi ekki neitt. Er fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik átti Nani skot að marki sem fór í Clichy og þaðan í teiginn. Þar var Ji-Sung Park vel staðsettur. Hann gerði svo afar vel í því að ná skalla að marki sem sveif yfir hinn tvítuga Szczesny sem stóð í marki Arsenal. Glæsilegt mark og ekki við hinn unga markvörð að sakast. Park og Evra fagna i kvöld. Arsenal ógnaði nákvæmlega ekki neitt í fyrri hálfleik og varð því að breyta sínum leikstíl fyrir síðari hálfleikinn. Það var mun meira líf í liði Arsenal í seinni hálfleik og eftir um tíu mínútna leik í síðari hálfleik opnaðist leikurinn nokkuð mikið. Bæði lið fengu færi sem þeim tókst ekki að nýta. Á 72. mínútu var dæmd vítaspyrna á Arsenal er Gael Clichy fékk boltann í hendina er hann lá í teignum. Nokkuð umdeildur dómur en líklega átti United vítið inni eftir að ekkert var dæmt á Chamakh í fyrri hálfleik. Wayne Rooney fékk þá ábyrgð að taka vítið. Það gekk upp síðast en að þessu sinni brást Rooney bogalistin því hann skaut boltanum hátt yfir markið og líklega lengst út á bílastæði. Það kom þó ekki að sök því Arsenal náði ekki að jafna leikinn og United fagnaði því sigrinum og toppsætinu.
Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira