Liverpool ekki í vandræðum með Aston Villa Elvar Geir Magnússon skrifar 6. desember 2010 22:02
Liverpool er komið upp í áttunda sæti úrvalsdeildarinnar en liðið vann Aston Villa örugglega 3-0 á Anfield í kvöld. Aston Villa er í sextánda sætinu, aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. Jamie Carragher, Steven Gerrard og Fernando Torres voru allir fjarri góðu gamni í kvöld en það kom ekki að sök. Eftir fjórtán mínútna leik braut David Ngog ísinn í kjölfarið á hornspyrnu en varnarleikur Aston Villa var hreint út sagt hroðalegur. Gestirnir voru ekki búnir að jafna sig á þessu þegar Ryan Babel bætti við öðru marki aðeins tveimur mínútum síðar. Þar sem Torres var á fæðingardeildinni og gat ekki tekið þátt í leiknum fékk Babel óvænt tækifæri í byrjunarliðinu og það ákvað sá hollenski að nýta sér. Maxi Rodríguez innsiglaði svo öruggan sigur Liverpool á 54. mínútu eftir laglega sókn og lokatölurnar 3-0. Þess má til gamans geta að Joe Cole lék síðustu tíu mínúturnar fyrir Liverpool. Það er væntanlega erfitt fyrir Gerard Houllier, stjóra Aston Villa, að kyngja þessum úrslitum en hann var að mæta með sitt lið á Anfield í fyrsta sinn síðan hann lét af störfum sem stjóri Liverpool á sínum tíma.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Sjá meira