Alan Pardew: Aðrir stjórar segja að ég sé klikkaður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2010 17:15
Alan Pardew er sestur í stjórastólinn hjá Newcastle United þrátt fyrir að fjöldi stjóra hafi varað hann við að taka við liðinu. Pardew er áttundi stjóri félagsins á rúmlega fjórum árum og eigandinn Mike Ashley hefur ekki gott orð á sér fyrir að sýna stjórum sínum þolinmæði. Pardew sló hinsvegar til og skrifaði undir samning til ársins 2016. Það gerði hann þó aðeins eftir að fá það á hreint að Andy Carroll yrði ekki seldur og að það væru til peningar til leikmannakaupa þegar félagsskiptaglugginn opnar í næsta mánuði. „Ég væri að ljúga að ykkur ef ég viðurkenndi ekki að ég hafi verið smá hikandi þegar ég ferðaðist hingað norður. Það olli mér vissulega áhyggjum að liðið var búið að vera með fimm stjóra á stuttum tíma en ég er viss um að ég standi mig og fáu fullan stuðning til þess," sagði Pardew. Pardew ætlar að vinna sig inn í hug og hjörtu stuðningsmannanna sem hafa tekið heldur kuldalega á móti honum enda voru margir mjög ósáttir með það að Chris Hughton var rekinn. Alan Pardew.Mynd/AP„Ég þekki ekki til þessarar borgar og leyni því ekkert. Ég vil hinsvegar koma hingað með opna arma og meðtaka ást allra hér á fótboltanumn. Ég flyt hingað og verð vonandi hérna í langan tíma," sagði Pardew. „Ég fékk samt fullt af sms-um frá öðrum stjórum sem sögðu að ég væri klikkaður að koma hingað. Þetta er stór klúbbur og einn af þeim fimm flottustu í landinu. Ég hefði ekki getað lifað með sjálfum mér ef að ég hefði ekki tekið við þessari áskorun," sagði Pardew.
Mest lesið Magnaður McIlroy með stærstu forystu sögunnar Golf Bjarni Guðjóns í garðyrkjuhönskum á opnunarleiknum Fótbolti „Tók bara eina snertingu og vissi hvað ég ætlaði að gera“ Sport Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Enski boltinn Björgvins Halldórssonar minnst með einnar mínútu þögn Handbolti Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Golf Oliver sagður á leið til Keflavíkur Íslenski boltinn Uppgjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Körfubolti Besta-spáin 2026: Þurfa að svara fyrir sig Íslenski boltinn Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Sjá meira