Ástarbréf JFK til sænskrar fegurðardísar á uppboði 15. febrúar 2010 21:34 John F. Kennedy var hress maður.
Ástarbréf fyrrum forseta Bandaríkjanna, John F. Kennedy til sænsku fegurðardísarinnar Gunilla von Post eru á uppboði eftir að fréttastöðin ABC opinberaði bréfin á dögunum. Vonir standa til að bréfin verði slegin á hundrað þúsund dollara, eða tæpar þrettán milljónir króna. Um er að ræða allnokkur bréf og símskeyti sem hann sendi Von Post á árunum 1953 til 1959. Meðal annars má finna bréf frá forsetanum kvensama til Von Post sumarið eftir að hann giftist eiginkonu sinni, Jacqueline Bouvier. Upp komst um ástarsamband þeirra Kennedys og Von Post árið 1997 í ævisögu kappans frá sama ári. Hingað til hefur frægasta framhjáhald þessa kvensama forseta verið við leikkonuna Marilyn Monroe sem svipti sig lífi á sjöunda áratugnum. Flest bréfin sem Kennedy sendi Von Post eru frá árinu 1954 en þá ætlaði Kennedy að ferðast á bát í Evrópu og ná í Von Post í Frakklandi. Aldrei varð úr því þar sem Kennedy meiddi sig í baki og þurfti því að aflýsa bátsferðinni. Svo virðist sem Kennedy hafi upphaflega kynnst Von Post á frönsku riveríunni árið 1953. Hann var þá 36 ára gamall en hún 21 árs. Ástarsambandinu lauk þremur árum áður en Kennedy var kjörinn forseti Bandaríkjanna árið 1961. Hann var svo skotinn í Dallas eftir að hafa gegnt embættinu í tvö ár. Hafi einhver áhuga á að bjóða í bréfin má nálgast uppboðið hér.
Mest lesið Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Erlent Vestmanneyingar „slógu velferðarskjaldborg“ yfir gesti Innlent Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Innlent Fagna afmæli virkjunar sem sökkti sveitajörðum en rafvæddi síldarbæ Innlent Landsvirkjun sé ekki „löngu búin að semja“ við alla landeigendur Innlent Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Erlent Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Erlent Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Erlent Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Erlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Fleiri fréttir Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Létu sprengjum rigna á Kænugarð Segja 30 hafa látist í skotárás Ísraelshers við dreifingu neyðargagna Kanada í hóp þeirra sem hyggjast viðurkenna sjálfstæði Palestínu Sjö dáið úr hungri síðasta sólarhringinn Sjá meira