Konur sækja í auknum mæli í fjárhættuspil á netinu 17. janúar 2010 12:00
Upp er komin ný kynslóð kvenna í Bretlandi sem er háð póker á netinu, sem hingað til hefur verið talinn höfða aðallega til karlmanna. Fíkn í fjárhættuspil á netinu er vaxandi vandamál í Bretlandi eins og víða í Evrópu. Konur sem ekki myndu láta sjá sig í reykfylltum bakherbergjum á spilaknæpum stunda póker á netinu og tapa stórum fjárhæðum í vernduðu umhverfi heima hjá sér, að því er breska dagblaðið The Guardian greinir frá í dag.Bresk stjórnvöld áætla að það séu á bilinu 236 þúsund til 378 þúsund einstaklingar í Bretlandi sem glíma við spilafíkn, en Gamblers Anonymous, samtök áhugafólks um spilafíkn þar í landi, telja að talan sé nærri 600 þúsund.Ríkisrekin heilsgæslustöð í Lundúnum sem aðstoðar spilafíkla eingöngu hefur nú sett upp sérstakt barnaverndarsvið með það fyrir augum að hvetja mæður með spilafíkn að leita sér aðstoðar, en spilafíkn foreldra bitnar oft verst á börnunum. Nú eru um 2000 síður á netinu sem bjóða upp á fjárhættuspil og margar þeirra notfæra sér að konum finnst öruggara og betra að spila heima með því að höfða sérstaklega til þeirra.Hér á landi hafa Samtök áhugafólks um áfengisvandann, SÁÁ, aðstoðað einstaklinga með spilafíkn. Þeir sem vilja takast á við spilafíkn sína eiga kost á að sækja fundi í stuðningshópum sem koma saman vikulega undir stjórn ráðgjafa á Göngudeild SÁÁ í Reykjavík.
Mest lesið Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Erlent Skora á Snorra að gefa kost á sér Innlent Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Innlent Banna dróna yfir Danmörku Erlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Lögreglan með málið til rannsóknar Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Fleiri fréttir Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Æðsti leiðtogi mormóna látinn Banna dróna yfir Danmörku Óttast úrbræðslu vegna rafmagnsleysis í kjarnorkuveri Sjálft lýðræðið undir er Moldóvar ganga til kosninga Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Sigar hernum á „hryðjuverkamenn“ í Portland Ráku starfsmenn FBI sem fóru á hnéð eftir morðið á Floyd Fundu leynilega sígarettuverksmiðju í neðanjarðarbyrgi Drónar sáust á flugi yfir herflugvelli í Danmörku og Noregi Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Ætlar að peppa herforingjana á fundinum fordæmalausa Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Tekinn af lífi fyrir að myrða stúlkubarn við „særingu“ Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru Ekki hægt að staðfesta drónaflug við Álaborgarflugvöll Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Segist ekki munu leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Sjá meira