Erlent

Skotheld vesti seljast eins og heitar lummur fyrir HM

Obama og Brown eru sagðir á meðal viðskiptavina.
Obama og Brown eru sagðir á meðal viðskiptavina.

Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu sem fram fer í sumar hefur orðið til þess að skotheld fatnaður kólombíska fatahönnuðarins Miguel Caballero selst sem aldrei fyrr. Skotheldu vestin hans Caballeros eru nægilega sterk til þess að standast vélbyssuskothríð en þykja einnig svo vel hönnuð að hægt er að vera í þeim í fínustu koteilboðum.

Leiðtogar á borð við Barack Obama og Gordon Brown eru sagðir á meðal viðskiptavina Caballeros en sjálfur gefur hann ekki upp hverjir kaupa af sér af öryggisástæðum. Glæpatíðni er há í Suður Afríku og því hafa margir vel stæðir knattspyrnuáhugamenn séð sér leik á borði og fjárfest í skotheldum vestum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×