Erlent

Skutu táragasi á þjófagengi í Chile

Eyðileggingin er algjör.
Eyðileggingin er algjör.

Hermenn í Chíle skutu táragasi á þjófa sem stálu öllu steini léttara úr matvörubúð í miðborg Concepcion í dag, tveimur dögum eftir að jarðskjálfti reið þar yfir og lagði borgina í rúst. Þetta kom fram á fréttavef Reuters.

Matvörubúðin varð alelda í átökunum. Tíu þúsund hermenn eru á götum Concepcion til þess að halda uppi lögum og reglu síðan jarðskjálftinn reið yfir.

Ástandið er stórhættulegt enda fara þjófagengi um borgina rænandi og ruplandi. Meðal annars eru starfsmenn Landhelgisgæslunnar á Íslandi, sem eru staddir í borginni, vopnaðir skotvopnum til þess að verjast ribböldunum.

ríflega 700 manns hafa látist í jarðskjálftanum. Björgunaraðgerðir standa enn yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×