Enski boltinn

Moyes efstur á lista Tottenham ef Redknapp fer

Elvar Geir Magnússon skrifar
David Moyes.
David Moyes.

Eins og oft áður er heitt undir landsliðsþjálfara Englands. Raddir sem vilja fá heimamann við stjórnvölinn á ný verða æ háværari og þar er Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, oft nefndur til sögunnar.

The Sunday Mirror segir frá því í dag að stjórnarmenn Tottenham séu að undirbúa áætlun ef svo fari að Redknapp kveðji og taki við Englandi.

Samkvæmt heimildum blaðsins er David Moyes, stjóri Everton, efstur á óskalista stjórnar Tottenham sem hefur einnig trú á að Roy Hodgson og Guus Hiddink geti gert góða hluti með liðið ef Redknapp hverfur á braut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×