Jafnt hjá Newcastle og Chelsea - Man Utd heldur toppsætinu Elvar Geir Magnússon skrifar 28. nóvember 2010 15:27 Didier Drogba fær tæklingu frá Danny Guthrie.
Newcastle og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli í mjög fjörugum leik sem var að ljúka. Manchester United fer því inn í vikuna á toppnum, liðið er með tveggja stiga forystu á Chelsea og Arsenal. Kevin Nolan gat ekki leikið með Newcastle vegna ökklameiðsla. Miðverðirnir Mike Williamson og Fabricio Coloccini tóku báðir út leikbann og því voru Sol Campbell og Steven Taylor í hjarta varnarinnar. Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, gerði aðeins eina breytingu á liðinu sem tapaði fyrir Birmingham. Jose Bosingwa kom í stað Paulo Ferreira. Newcastle byrjaði leikinn mun betur og komst yfir eftir aðeins sex mínútna leik en þá skoraði hinn sjóðheiti harðjaxl Andy Carroll. Hann nýtti sér fáránleg mistök hjá Alex, varnarmanni Chelsea, og skoraði í tómt markið. Alex gaf misheppnaða sendingu til baka ætlaða Petr Cech og komst Carroll í hana. Á lokamínútu fyrri hálfleiks jafnaði Chelsea. Florent Malouda kom boltanum á Salomon Kalou sem lék á Campbell áður en hann skaut að marki. Boltinn breytti lítillega um stefnu af varnarmanni áður en hann hafnaði í netinu. Þrátt fyrir að engin mörk hafi verið skoruð í seinni hálfleiknum var hann opinn og skemmtilegur. Chelsea bjargaði á línu og þá fékk Kalou dauðafæri til að tryggja þeim bláu stigin þrjú en brást bogalistin. Newcastle situr í níunda sæti deildarinnar með 19 stig eftir þennan leik.
Enski boltinn Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira