Erlent

Gerðu áhlaup á bækistöð bandaríska hersins í Kandahar

Bandarískir hermenn í Afganistan.
Bandarískir hermenn í Afganistan. Mynd/AP
Afganskir uppreisnarmenn úr röðum talibana gerðu áhlaup á flugvöllinn í Kandahar seint í gærkvöld. Flugvöllurinn er aðalbækistöð bandaríska hersins og bandamanna þeirra í suðurhluta Afganistan. Að sögn vitna ómuðu skothvellir og sprengingar um flugvöllinn í um tvær klukkustundir, en talsmaður herliðsins segir tiltölulega fáa hafa slasast í árásunum. Enn liggur ekkert fyrir um mannfall.

Talibanar lýstu fyrr í mánuðinum yfir að þeir myndu hefja skipulegar árásir á herstöðvar bandamanna, og er áhlaupið á flugvöllinn talinn liður í þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×