Réttarhöldum yfir lækni Baby P. frestað 4. mars 2010 21:00 Baby P. átti stutta og hryllilega ævi. Andlát hans var áfellisdómur yfir félagslegu kerfi Bretlands.
Læknaráð Bretlands hefur frestað réttarhöldum yfir lækninum Sabah Al-Zayyat sem annaðist Baby P. áður en hann lést af ofbeldisáverkum sínum. Zayyat, sem er rúmlega fimmtug og á rætur að rekja til Saudi arabíu, er sökuð um að hafa orðið uppvís af vanrækslu þegar hún gat ekki veitt Baby P. fulla læknisskoðun þar sem henni þótti drengurinn óþekkur. Tilgangur réttarhaldsins er að kanna hvort svipta eigi Zayyat læknaréttindum. Þá var Baby P. með brotið bak eftir ítrekaðar misþyrmingar sem hann þurfti að þola allt frá fæðingu til dagsins sem hann dó, tæplega tveggja ára gamall. Móðir drengsins auk kærasta hennar og bróður voru dæmd í fangelsi fyrir að misþyrma honum og valda dauða drengsins. Málið fékk gríðarlega athygli í Bretlandi og þá helst í ljósi þess að opinbert eftirlit brást drengnum algjörlega. Meðal annars heimsóttu 50 félagsráðgjafar heimilið hans án þess að gera nokkuð í ofbeldinu sem hann var beittur. Sorgarsaga Baby P. hélt svo áfram þegar hann var loksins færður undir læknishendur. Zayyat fannst hann of óþekkur til þess að hún gæti skoðað hann almennilega og því yfirsást henni fjölmargir áverka, meðal annars brotið bak drengsins sem dró hann að lokum til dauða. Samkvæmt frétt The Daily Telegraph þá yfirgaf Zayyat Bretland í skyndi áður en réttarhöldin hófust. Þá hefur hún ekki haft samband við lögmenn sína síðan hún yfirgaf landið. Að auki þá mun hún vera andlega veik vegna málsins. Engar sérstakar skýringar fengust á veikindum hennar í réttarhöldunum þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um slíkt. Aftur á móti féllst læknaráðið á að fresta réttarhöldunum í ljósi þess að hún getur ekki verið viðstödd dómshaldið. Annað væri brot á mannréttindum samkvæmt úrskurði ráðsins. Hún er þó ekki laus allra mála heldur verður rétta yfir henni um leið og hún snýr aftur til Bretlands. Það er þó óvíst hvort hún snúi til baka en í frétt Telegraph kemur fram að hún hafi sótt um starf sem læknir á Írlandi án þess að upplýsa hugsanlegan vinnuveitanda um málið.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Sjá meira