Erlent

Barn svalt til dauða vegna leikjafíknar foreldra sinna

Úr Second Life leiknum.
Úr Second Life leiknum.

Kóreskt par hefur verið ákært fyrir að hafa orðið þriggja mánaða dóttur sinni að bana vegna alvarlegrar vanrækslu. Parið hringdi í lögregluna og tilkynnti þeim að dóttir þeirra væri dáin í september á síðasta ári. Svo virtist sem barnið hefði látist í svefni.

Þegar réttarmeinafræðingur rannsakaði barnið kom í ljós að það lést vegna vökva- og næringarskorts. Ástæðan var sú að foreldrarnir voru orðin alvarlega háðir tölvuleiknum Second Life. Leikurinn gengur út á að leikendur spila venjulegar persónur í sýndarveruleika. Í leiknum áttu þau lítið barn sem þau sinntu samviskusamlega.

Parið eyddi um tólf klukkustundum á netkaffihúsum og spiluðu leikinn. Á meðan lá barnið heima. Í ljós kom að stúlkubarnið drakk einn pela að meðaltali yfir daginn.

Foreldrarnir flúðu rétt eftir jarðarför barnsins og komust því undan réttvísi laganna. Fimm mánuðum síðar fundust þau og hafa þau nú verið ákærð fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana.

Við það tækifæri sögðu þau dómaranum að þau hefðu ekki spilað leikinn í þá fimm mánuði sem þau voru á flótta. Slíkt var samviskubitið.

Tölvuleikir eru gríðarlega vinsælir í Kóreu. 25 ára gamall karlmaður lést á dögunum eftir að hann spilaði tölvuleik linnulaust í 50 klukkustundir án þess að nærast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×