Erlent

Íslendingur myrti annan Íslending í Kaupmannahöfn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjörtíu og sjö ára gamall Íslendingur myrti annan Íslending, 42 ára að aldri, í Kaupmannahöfn rétt fyrir miðnætti í gærkvöld.

Morðið átti sér stað í suðvesturhluta Kaupmannahafnar. Ritzau fréttastofan segir að hinn látni hafi verið stunginn margsinnis með hníf. Nágrannar heyrðu hávaða frá íbúðinni þar sem morðið var framið. Mennirnir tveir virðast hafa setið að drykkju eða neytt fíkniefna áður en ódæðið var framið.

Ritzau segir að mennirnir séu báðir óreglumenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×