Innlent

Brýnt að breyta innkaupareglum Kópavogs

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir brýnt að breyta innkaupareglum bæjarfélagsins. Hún hefur lagt fram tillögu í bæjarráði sem gerir ráð fyrir að útboð verði viðhaft vegna verklegra framkvæmda umfram 10 milljónir. Viðmiðið í dag er 20 milljónir.

Undanfarin ár hafa ýmsar greiðslur Kópavogsbæjar til verktaka verið umdeildar. Til að mynda riðaði meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks til falls síðasta sumar vegna viðskipta bæjarfélagsins við fyrirtæki í eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar, þáverandi bæjarstjóra. Nýjasta málið snýr að stuðningsmanni Gunnars sem gegnir starfi skoðunarmanns reikninga bæjarins fyrir hönd sjálfstæðismanna. Hann fékk rúmlega sjötíu milljónir króna frá Kópavogsbæ fyrir ýmis hönnunar- og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út.



Mikilvægt að tryggja hagstæðustu verðin


„Ég tel brýnt að verkferlar og gegnsæi séu bættir vegna kaupa á vöru og þjónustu til að tryggja hagstæðustu verðin. Auk þess mun ég leggja til í framhaldinu að vegna kaupa á þjónustu og vörukaupa undir þessum viðmiðum verði skilyrðislaust leitað verðtilboða, nema rökstuðningur liggi fyrir sé annað ákveðið," segir Guðríður.

Guðríður vill að fram fari útboð þegar áætluð fjárhæð vegna kaupa Kópavogsbæjar á þjónustu fer yfir 5 milljónir en viðmiðið í dag er 15 milljónir. Hún telur auk þess að vörukaup eigi að miðast við 2,5 milljónir í stað 10 milljóna. Guðríður segir að þetta séu samskonar viðmiðunarfjárhæðir og eru í Hafnarfirði og að þær séu enn lægri á Akureyri.

Tillaga Guðríðar gerir ráð fyrir að fjárhæðirnar breytist með hliðsjón af byggingarvísitölu. Á síðasta bæjarráðsfundi var tillögunni vísað til bæjarlögmanns til umsagnar.






Tengdar fréttir

Má draga hlutleysi Halldórs í efa

Sérfræðingur í sveitastjórnalögum vill ekki fullyrða um hvort Halldór Jónsson skoðunarmaður reikninga Kópavogsbæjar sé vanhæfur til að gegna því starfi þótt hann hafi fengið rúmlega 70 milljónir króna greiddar frá bænum vegna annarra starfa. Það sé þó hægt að draga hlutleysi hans í efa í þeim efnum þar sem hann þiggi greiðslur frá bænum á sama tíma og hann yfirfari reikninga hans.

Segir vinnubrögð ámælisverð

„Það er ljóst að fyrirtæki Halldórs voru færð verk á silfurfati og tilboða ekki leitað. Það er ólíðandi í opinberri stjórnsýslu og brýnt að alltaf sé leitað tilboða til að tryggja hagstæðasta verð,“ segir Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi.

Halldór Jónsson: Þegar skamma á Moskvu verður Albanía fyrir valinu

Verkfræðingurinn Halldór Jónsson svarar ásökunum eigin flokksmanna um óeðlileg viðskipti fyrirtækis á hans vegum við Kópavogsbæ í pistli á bloggi sínu í dag. Þar lætur hann að því liggja að árásir á hann séu í raun pólitískar árásir á Gunnar Birgisson, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs, en hann sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi.

Tugmilljónagreiðslur án útboðs

Stuðningsmaður Gunnars I. Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, sem gegnir starfi skoðunarmanns reikninga bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðismanna, fékk rúmlega sjötíu milljónir króna frá bænum fyrir ýmis hönnunar-og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×