Tugmilljónagreiðslur án útboðs 12. febrúar 2010 18:39
Stuðningsmaður Gunnars I. Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, sem gegnir starfi skoðunarmanns reikninga bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðismanna, fékk rúmlega sjötíu milljónir króna frá bænum fyrir ýmis hönnunar-og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út. Halldór Jónsson er 72 ára verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar. Hann á í dag fyrirtækið Hallstein ehf. Halldór er einnig fyrrverandi formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og stuðningsmaður Gunnars I Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra. Samkvæmt greiðsluyfirliti sem fréttastofa fékk frá Kópavogsbæ hefur hann þegið rúmlega sjötíu milljónir króna í greiðslur á árunum 2003-2008 fyrir störf á sviði hönnunar, eftirlits og framkvæmda. Fyrir verkefni vegna Hjallaskóla fékk hann rúmar fjórar milljónir króna með virðisaukaskatti. Í Vatnsendaskóla tæpar sextán milljónir. Vegna viðbyggingar MK rúmar fimm milljónir. Vegna verkefna í Fannborg 2 tæplega ellefu milljónir. Vegna sambýlis við Roðasali, tæplega fjórtán milljónir. Við Hörðukór 2 tæpar átta og vegna verkefna við Unglingahús að Hábraut fékk hann tæpar fjórtán milljónir króna. Halldór er skoðunarmaður reikninga bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og gefur umsögn um þá sem fulltrúi meirihlutans. Hann gæti því hafa farið yfir reikninga frá sínu eigin fyrirtæki. Samkvæmt heimildum fréttastofu var ekkert af þessum verkum boðið út. Bæjarstjórinn í Kópavogi hefur óskað eftir frekari upplýsingum um málið. Gunnar I. Birgisson fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs segir ekkert óeðlilegt við greiðslur til fyrirtækis í eigu Halldórs. Tæknideild hjá Kópavogsbæ hafi á eigin vegum tekið ákvörðun um störf hans. Hann bendir á að verkfræðistofan Byggð hafi fengið miklu hærri greiðslur en fyrirtæki Halldórs síðustu tuttugu árin og það sé í eigu fyrrverandi bæjarfulltrúa alþýðubandalagsins. Ekkert hafi verið óeðlilegt við það heldur, því verkfræðistofan Byggð hafi boðið best.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira