Vilja kjósa um aðild Tyrklands að ESB 27. október 2010 05:00 Heinz-Christian Strache og félagar hans í hópi hægrimanna vilja láta kjósa um inngöngu Tyrklands í ESB. Fréttablaðið/AP
Flokkar utarlega á hægri væng evrópskra stjórnmála hyggjast efna til undirskriftasöfnunar til að þrýsta á um almenna þjóðaratkvæðagreiðslu innan Evrópusambandsins (ESB) til að koma í veg fyrir aðild Tyrklands að sambandinu. Um helgina hittust fulltrúar hægriflokka í Vín, að undirlagi Frelsisflokks Austurríkis. Þar voru samankomnir Sjálfstæðisflokkur flæmingja í Belgíu, Norðurbandalagið frá Ítalíu, Svíþjóðardemókratar og danski Þjóðarflokkurinn. Var það niðurstaða fundarins að Tyrkland „ætti ekki heima í Evrópu“ og að borgarar ESB ættu að fá að segja sína skoðun á málinu. Því er lagt út í undirskriftasöfnun, en samkvæmt Lissabon-sáttmála ESB er hægt að krefja framkvæmdaráð sambandsins um að íhuga lagasetningu í tilteknu máli ef ein milljón undirskrifta fást því til stuðnings. Heinz-Christian Strache, formaður Frelsisflokksins, sagði eftir fundinn að Evrópa væri á villigötum ef Tyrklandi yrði hleypt inn. „Innganga Tyrklands myndi boða endalok ESB og upphaf sam-evrópsk-asísk-afrísks sambands sem er í andstöðu við friðarverkefni Evrópu og það má ekki gerast.“ - þj
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Sjá meira