Willum Þór: Okkur skortir einhvern sem kveikir á perunni og vill skora mörk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júlí 2010 22:41 Willum Þór Þórsson.
Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, hoppaði til og frá á hliðarlínunni í á Sparisjóðsvellinum í kvöld en fékk aldrei sigurmarkið sem hans menn unnu svo vel fyrir. Keflvík gerði því 1-1 jafntefli við nágranna sína og hefur þar með aðeins fengið 7 stig út úr síðustu 9 leikjum sínum í Pepsi-deildinni. „Ég vildi fá meira út úr þessum leik. Baráttan var til staðar, vinnusemin var til staðar og skipulagið var fínt. Við spiluðum boltanum líka vel á milli okkur og það eina sem vantaði var endahnúturinn og meiri grimmdi í að klára færin," sagði Willum Þór. „Þeir spiluðu aftar heldur en við erum vanir. Við náðum að vinna boltann vel í gegnum miðsvæðið og koma upp með bakverðina. Við áttum mikið af fyrirgjöfum en okkur skortir meiri grimmd í teignum og einhvern sem kveikir á perunni og vill skora mörk," sagði Willum. „Það er augljóst mál í dag að okkur vantar markaskorara því við áttum að vinna þennan leik. Það er samt ekki endalaust hægt að tala um að eiga eða þurfa því við þurfum að sýna það að við getum skorað mörk og við þurfum bara að klára leikina okkar," sagði Willum sem grætur mörg töpuð stig á undanförnum vikum. „Það er mannskemmandi að horfa til baka á alla leikina að undanförnu sem við hefðum getað klárað. Við þurfum alltaf að horfa á næsta leik en þetta voru tvö töpuð stig," sagði Willum Þór.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Sjá meira