Erlent

Rekinn fyrir að gefa ekki út viðvörun eftir skjálftann

MYND/AFP

Stjórnvöld í Chile hafa rekið forstjóra stofnunarinnar sem hefði átt að gefa út flóðbylgjuviðvörun í kjölfar jarðskjálftans sem varð 800 manns að bana í síðustu viku. Stofnunin er hluti af sjóher Chile og hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast ekki strax við. Sjóherinn hefur einnig hafið rannsókn á því hvernig staðið varð að málum í hamförunum.

Þrír öflugir jarðskálftar riðu yfir í Chile í dag og voru þeir nægilega öflugir til þess að hús sem áður höfðu orðið fyrir skemmdum í Concepcion borginni hrundu til grunna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×