Erlent

Clinton heitir meiri hjálp í baráttunni við dópsmyglara

MYND/AFP
Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur lofað því að Bandaríkjamenn láti meira til sín taka í baráttunni við eiturlyfjahringi í Mið-Ameríku. „Við ætlum að efla enn frekar samvinnu okkar á næstu mánuðum og árum," sagði Clinton en í dag lauk fimm daga ferð hennar um Suður-Ameríku. Í dag var hún stödd í Guatemala en ríki Mið-Ameríku verða illa úti í eiturlyfjastríðinu sem helst hefur geisað í Mexíkó að norðanverðu og í Kólombíu að sunnanverðu.

Mexíkanskir eiturlyfjasmyglarar hafa í ríkari mæli fært sig yfir til Guatemala á síðustu árum til þess að forðast átök við Mexíkóska herinn sem hefur skorið upp herör gegn smyglurunum með aðstoð Bandaríkjamanna.

Talið er að þrír fjórðu hlutar þeirra eiturlyfja sem streyma inn í Bandaríkin ár hvert séu fluttir í gegnum Mið-Ameríku en veltan er talin nema um 40 milljörðum Bandaríkjadala. Clinton segir að Bandaríkin verði að axla meiri ábyrgð í ljósi þess að markaðurinn sé mestallur þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×