Erlent

Hvíta húsið ætlar að koma í veg fyrir ályktun um þjóðarmorð

Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar að koma í veg fyrir að umdeild þingsályktun verði samþykkt á Bandaríska þinginu en þar segir að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimstyrjöldinni. Málið hefur vakið upp miklar deilur á milli Bandaríkjamanna og Tyrkja og hafa Tyrkir meðal annars kallað sendiherra sinn heim frá Washington.

Hillary Clinton utanríkisráðherra sagði í kvöld að Hvíta húsið myndi vinna af miklum þunga að því að koma í veg fyrir að ályktunin fari í gegnum þingið. Á fimmtudaginn samþykkti nefnd Öldungadeildaþingmanna að ályktunina mætti taka fyrir.

Ályktunin gengur út á að Barack Obama Bandaríkjaforseti sjái til þess að utanríkisstefna landsins taki mið af því að viðurkennt sé að Tyrkir hafi á sínum tíma framið þjóðarmorð á Armenum. Svipuð tillaga var lögð fram fyrir tveimur árum en þá kom þrýstingur frá George Bush þáverandi forseta í veg fyrir að hún næði fram að ganga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×