Enski boltinn

Mamma Paul Konchesky úthúðar stuðningsmönnum Liverpool á Facebook

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Mamma Paul Konchesky, leikmanns Liverpool, var orðin hundleið á gagnrýni stuðningsmanna félagsins á syni hennar og lét þá heyra það á Facebook-síðunni sinni.

Kallaði hún stuðningsmennina „Scouse scum" sem verður ekki þýtt nánar hér.

Konchesky kom til Liverpool frá Fulham í sumar fyrir fjórar milljónir punda en hefur átt erfitt uppdráttar í haust.

Carol Konchesky lét þó ekki staðar numið þar og sagði lið Liverpool ömurlegt og að stuðningsmenn þess ættu að hætta að lifa í fortíðinni.

Þegar kvartanir bárust undan færslunni var síða Carol tekin niður.

„Ummæli frúar Konchesky voru óviðeigandi og hafa nú þegar verið fjarlægð af Facebook. Þetta er þó fyrst og fremst einkamál fjölskyldunnar," sagði talsmaður Liverpool við enska fjölmiðla vegna þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×