Konungsfjölskyldan í Katar ætlar að kaupa Manchester United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. desember 2010 12:00 Hamad sjeik, forsætisráðherra Katar, með Gordon Brown, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, árið 2008. Nordic Photos / Getty Images
Eignarhaldsfélagið Qatar Holdings ætlar sér að kaupa Manchester United fyrir einn og hálfan milljarð punda samkvæmt frétt Sunday Mirror í dag. Mirror hefur farið mikinn í haust og greindi fyrstur miðla frá málefnum bæði Carlos Tevez um síðustu helgi og Wayne Rooney fyrr í haust. Nú er því haldið fram að konungsfjölskyldan í Katar ætli sér að eignast Manchester United. Eins og kunnugt er verður heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu haldin í Katar árið 2022. Manchester City er nú í eigu Abu Dhabi United Group þar sem Mansour sjeik fer fremstur í flokki. Abu Dhabi er stærsta borgin í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem á landamæri að Katar. Konungsfjölskyldan hefur fest kaup á mörgum frægum fasteignum í Bretlandi sem og Harrods-verslunarkeðjunni. Þá var greint frá því í síðustu viku að Qatar Foundation, góðgerðarsamtök konungsfjölskyldunnar, hefðu gert risastyrktarsamning við Barcelona á Spáni. Qatar Holdings á einnig stóran hlut í Volkswagen-bílaframleiðandanum sem og Porsche. Stjórnarformaður Qatar Holdings, Hamad sjeik, er einnig forsætisráðherra landsins. Glazer-fjölskyldan keypti Manchester United fyrir 790 milljónir punda árið 2005 og ljóst að hún getur grætt mikið á því að selja félagið til Katar. Glazer-feðgarnir eru ekki þeir vinsælustu í Manchester eftir að hafa tekið út lán gegn veði í eignum félagsins. Því er talið að stuðningsmenn muni fagna aðkomu konungsfjölskyldunnar í Katar. Konungsfjölskyldan mun hafa lagt til hliðar 2,5 milljarða punda til að kaupa félagið og gera Alex Ferguson, stjóra United, kleift að hafa ótakmörkuð fjárráð til að kaupa nýja leikmenn til United. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Qatar Holdings er sagt hafa áhuga á að kaupa knattspyrnufélag í Evrópu en það hefur verið orðað við Barcelona, Real Madrid, Chelsea, Liverpool, Tottenham og Newcastle. Manchester United mun þó alltaf hafa verið efst á óskalistanum.
Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira